Read sample
Read
Listen to sample
Listen

Rauðu skórnir

Stúlkan Katrín er sárafátæk, en á dánardegi móður hennar gefur gamla skóarakonan henni rauða skó. Katrínu þykja skórnir undurfagrir og ber þá við útför móður sinnar. Í kjölfarið verður hún fyrir þeirri lukku að gömul sterkefnuð kona tekur hana að sér. Þeirrar fyrsta verk verður að brenna rauðu skóna og fata Katrínu uppá nýtt.

Hún lifir nú sældarlífi undir verndarvæng gömlu konunnar um nokkra hríð. Þegar kemur að því að kaupa á hana fermingarfötin fara þær meðal annars til skósmiðsins. Katrín heillast þar af eldrauðum skóm, sem minna hana á bernskuskóna – en gamla konan tekur því fjarri. Þannig vill þó til að henni er farin að daprast sjón, svo Katrín leikur á hana, en það hefur alvarlegar afleiðingar.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Rauðu skórnir" eru saga um hvernig hégómi og undirferli getur farið með fólk. Stúlkan Katrín tekur sannarlega út fyrir syndir sínar, en iðrunin gæti þó fært henni frið. rn
1,42  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages7 Sider
Publish date11 Feb 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726237702
ISBN audio9788726238297