Read sample
Read
Listen to sample
Listen

Hrafnkels saga Freysgoða

Hrafnkels saga Freysgoða er einna þekktust Austfirðingasagna. Hún segir frá Hrafnkatli sem átti hestinn Freyfaxa. Maður kallaður Einar smalamaður fór ekki að orðum Hrafnkels og stalst til að ríða hestinum. Fyrir þennan verknað þarf Einar að gjalda með lífi sínu. Dráp það hafði svo víðferm áhrif í kjölfarið.

Um fáar Íslendingasögur hefur verið jafn mikið skrifað og fjallað um og þessa nema þá helst Njálu. Þó sagan sé knöpp í samanburði við margar aðrar Íslendingasögur eru efnistök listræn og bygging hennar með þeim betri.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
3,73  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages30 Sider
Publish date09 Dec 2019
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726225402
ISBN audio9788726516654