Read sample
Read
Listen to sample
Listen

Svanirnir

Í fjarlægu landi búa tólf systkin, ellefu bræður og ein systir. Börnin eru konungborin og lifa lífi sínu eftir því, þar til þau verða fyrir því óláni að faðir þeirra kvongast á ný. Nýja drottningin er reglulegt galdraflagð. Dótturina sendir hún í burtu úr höllinni en á synina leggur hún þau álög að þeir breytist í svani á björtum degi og megi einungis öðlast sitt mennska form er sól hnígur til viðar.

Þegar systirin, Elísa, er orðin fimmtán ára hittir hún bræður sína á ný og verður vísari um örlög þeirra. Hún sver þess dýran eið að rifta álögunum sama hvað það kosti. Henni vitjast lausn í draumi, en sú er ekki þrautalaus og fleiri steinar eiga eftir að verða í götu hennar.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Svanirnir" er fallegt ævintýri um systkinakærleik, sem um leið blandar saman mörgum þekktum ævintýraminnum. Sagan inniheldur aukinheldur ýmsar vísanir, sem útskýrðar eru á vandvirknislegan máta í neðanmálsgreinum. rn
1,42  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages14 Sider
Publish date11 Feb 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726237696
ISBN audio9788726238303