Listen to sample
Listen

Hugleiðsla og slökun fyrir börn - Kærleikaferð

Leidd hugleiðsla og slökun þar sem við förum með 5-8 ára gömlum börnum í rólegar skynferðir. Tilvalið til hlustunar þegar börnin hafa þörf fyrir hvíld í önnum dagsins. Hugleiðslan auðveldar þeim að slaka á, sofna, vakna, anda og ferðast á vit ævintýra djúpt inni í sér.

Auður Bjarnadóttir hefur kennt jóga undanfarna tvo áratugi. Hún er með kennsluréttindi í meðgöngujóga, hatha/ashtanga, kundalini, jóga nidra og jógaþerapíu. Auður leiðir fjölda námskeiða í Jógasetrinu þar sem hún sérhæfir sig í meðgöngu- og mömmujóga en hún býr einnig að því að vera Doula. Auður sá einnig um krakkajóga í Stundinni okkar og hefur þar af leiðandi kynnt jóga fyrir fólki á öllum aldri. Trine er skynhreyfiþjálfari og kennari í núvitund. Hún vinnur með börn, hreyfingu og slökun út frá tilfinningalegri og heildrænni nálgun.
1,29  EUR
Audiobook
 
Edition
Printed pages
Publish date16 May 2022
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN audio9788726975222