Listen to sample
Listen

Penninn og blekbyttan

Á skrifborði skáldsins takast penninn og blekbyttan á. Ágreiningsefnið er hvort þeirra eigi stærri þátt í sköpun eiganda síns. Blekbyttan stendur á því að öll þau undur sem penninn færi á blaðið séu sótt í hennar dimmbláu djúp. Penninn hinsvegar vill ekki láta gera lítið úr sinni milligöngu í málinu, enda sé það hann sem færi hugmyndirnar í letur, með hjálp styrkrar handar síns skáldlega bróður.

Um þetta þræta þau uns skáldið sjálft skilar sér heim. Það hefur þá verið á undursamlegum fiðlutónleikum og er sannarlega uppnumið. Í hrifnæmisástandi sínu sest það niður og skrifar sína eigin hugleiðingu um sköpunina og hinn raunverulega meistara hennar. En niðurstaðan er hvorki pennanum né blekbyttunni í hag.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Ekki er ósennilegt að sagan um pennann og blekbyttuna byggi að einhverju leyti á hans eigin lífi. Þar veltir hann fyrir sér stöðu listamannsins, hver svo sem list hans er, gagnvart lífinu. Hann fjallar um innblástur og starfshætti en þó á þann lágstemmda máta að ljá verkfærum hans rödd. En kannski erum við öll verkfæri og sá sem heldur um stýristaumana skapari með stóru Essi.
1,16  EUR
Audiobook
 
Edition
Printed pages
Publish date03 Jun 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN audio9788726238389