Read sample
Read

Eldsvoðar

Á fjögurra ára tímabili urðu fjórir eldsvoðar í þorpi úti á landi sem sami maður var valdur af. Aldrei féll grunur á hann fyrr en eftir síðasta eldsvoðann og má segja að hann hafi komið upp um sig sjálfur. Hér á eftir verður hann kallaður X. Þegar upp komst að maðurinn hafði kveikt í þegar síðasti bruninn átti sér stað var farið að ganga á hann með hina brunana og að lokum játaði hann að eiga þar hlut að máli líka. Mikið tjón varð í þessum eldsvoðum en í a.m.k. einu tilfelli leit út fyrir að hann hefði bjargað einu fyrirtæki á staðnum frá stjórtjóni með vasklegri framgöngu áður en slökkviliðið kom á staðinn og fékk hann mikla viðurkenningu fyrir.  Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
1,16  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages10 Sider
Publish date11 Aug 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726523201