Read sample
Read

Brennuvargur gengur laus í elsta bæ Danmerkur

Í elsta og best varðveitta bæ Danmerkur urðu nokkrir ískyggilegir eldsvoðar seint á árinu 2000 og fram á haust árið 2001. Ribe er einstakur bær sem hefur að geyma fjölda sögulegra minja og er, að sumra áliti, viðkunnanlegasti bærinn í allri Danmörku. Bæjarkjarninn hefur yfir sér miðaldablæ, þar eru fjöldamörg múrg- reypt hús með fallega útskornu tréverki og lystilega gerðum útidyrum og einstök götuljós á litlum götum lögðum tilhöggnum steinum. En ef til vill var þessi indæli bær ekki svo indæll lengur, því hugsanlega gekk brennuvargur laus. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
1,16  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages6 Sider
Publish date25 Sep 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726511925