Read sample
Read

Ísland, vettvangur skipulagðrar glæpastarfsemi

Hinn 11. september 2001 mun lifa í huga flestra jarðarbúa um ókomna tíð vegna hryðjuverkaárásanna sem gerðar voru á Bandaríkin þann dag. Þennan dag gerðust hér á landi ótengdir atburðir sem urðu kveikjan að því máli sem hér er til umfjöllunar. Ísland, þessi litla eyja norður í Dumbshafi, varð vettvangur skipu- lagðrar fjárglæfrastarfsemi sem átti eftir að teygja anga sína víða áður en yfir lauk. Í eftirfarandi frásögn er nöfnum sakborninganna breytt. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
1,16  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages16 Sider
Publish date25 Sep 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726511963