Read sample
Read

Þegar áfallið reið yfir

Frásögn mín fjallar um bankarán sem hafði í för með sér að Morten Mortensen lögreglumaður lét lífið. Auk þess var gíslataka hluti af málinu. Margir áttu um sárt að binda vegna þessa máls, aðallega fjölskylda Mortens en einnig þeir mörgu gíslar sem komu við sögu. Málið hafði mikil áhrif á samstarfsfélaga Mortens og margir þeirra munu aldrei gleyma því. 
Svo seint sem í vikunni er ég sat og skrifaði um málið nefndi einn samstarfsfélagi minn að í hvert sinn sem hann sæi eða læsi um glæpamenn þá leitaði hugurinn ósjálfrátt til Mortens. Þau miklu áhrif sem málið hafði á samstarfsmenn Mortens eru kannski eitt af því sem gerði það að verkum að fyrst nú, 8 árum eftir atburðinn, er sagan skrifuð og þá eftir áskorun. Hún skal rituð af því að hún er hluti af sögu dönsku lögreglunnar.  Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
3,73  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages28 Sider
Publish date18 Aug 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726523553