Read sample
Read

Eftirlýstur bankaræningi handtekinn á Íslandi

Einn frægasti strokufangi Vestur-Þýskalands, bankaræninginn Ludwig Lugmeier, var handtekinn fyrir hreina tilviljun af fimm óvopnuðum reykvískum lögreglu- mönnum að kvöldi föstudagsins 29. júlí árið 1977.
Í kjölfarið fylgdi mikil umfjöllun innlendra sem erlendra fjölmiðla af atburðinum, sem þótti með þeim merkari hér á landi. Eftir handtökuna endur- heimtust 277 þúsund mörk úr ránsfengnum. 
Nokkrum dögum seinna tóku um 50 þýskir lögreglumenn með alvæpni á móti Lugmeier þegar íslenskur rannsóknarlögreglumaður skilaði honum af sér á flug- vellinum í Frankfurt. Þar með lauk ævintýralegum og átakanlegum 18 mánaða flótta hans undan réttvísinni vítt og breytt um heiminn.  Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
1,16  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages18 Sider
Publish date11 Aug 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726523195