Read sample
Read

Umfangsmikill vændishúsarekstur

Athugasemd, sem var varpað fram á einum af reglubundnum fundum toll- og skattyfirvalda með efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Álaborg, hafði í för með sér að vorið 2000 hófst rannsókn á hugsanlegum vændishúsarekstri konu að nafni Mette (breytt nafn). 
Mette var gift og átti þrjú börn, þar af tvö smábörn. Fjölskyldan bjó í einbýlishúsi í nágrenni Álaborgar og líf hennar virtist vera eins og annarra fjölskyldna. 
Rannsóknin leiddi til þess að um einu og hálfu ári síðar var Mette ákærð fyrir rétti í Álaborg fyrir brot á 228. grein í dönsku hegningarlögunum sem varðar vændishúsarekstur. Hún var ákærð fyrir að hafa rekið vændishús í Frederikshavn, Viborg, Randers, Álaborg og Viby um átta ára skeið frá 1992 og haft að yfirvarpi að um nuddstofur væri að ræða. Þá var hún ákærð fyrir að hafa haft rúmlega 8 milljónir danskra króna í tekjur af þessum rekstri á tímabilinu og ekki gefið þær tekjur upp til skatts.  Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
1,16  EUR
Buy Epub (e-book)
Incl. streaming access
Edition
Printed pages8 Sider
Publish date18 Aug 2020
Published bySAGA Egmont
Languageice
ISBN epub9788726523591